Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. febrúar 2024 var lögð fram fyrirspurn
Reirs ehf.
, dags. 9. febrúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð sem felst í uppbyggingu atvinnu- og skrifstofuhúss á lóð, samkvæmt tillögu Nordic Office Architecture, dags. í janúar 2024. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 5. febrúar 2024, þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 21. mars 2024.