Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. maí 2024 var lögð fram fyrirspurn Ólafar Flygenring, dags 9. febrúar 2024, um stækkun hússins á lóð nr. 3 við Hellusund sem felst í að byggja íbúðarhús á grunni bílgeymslu, sem rifin var niður fyrir nokkrum árum, og hækka í tvær hæðir, samkvæmt uppdr. Ólafar Flygenring, dags 8. febrúar 2024. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. maí 2024.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. maí 2024, samþykkt.