Frestað. Vísað til athugasemda.
13. Faxafen 12 - á pappír - BN060133 Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra
fyrirkomulagi 2. hæðar, þ.e. að innrétta jógastöð fyrir 40 gesti og 2 starfsmenn, með stórum sal,
kynjaskiptum búningsklefum með 5 sturtum hvor, móttöku, starfsmannaaðstöðu á nýju milligólfi,
sauna, kaldir pottar með sírennsli staðsettir milli búningsklefa og saunaklefa, í húsi á lóð nr. 12 við
Faxafen.
Stækkun, milligólf: 40,9 ferm.
Erindi fylgir samkomulag eigenda og leigjenda dags. 16. ágúst 2017 og umboð/samþykki húseiganda
vegna umsóknar dags. 26. október 2021, uppfærð byggingarleyfisumsókn, afrit hlutafélagaskrár,
greinargerð umsækjanda, ódagsett og afrit veðbókavottorðs dags. 24. nóvember 2021.