Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja hjóla- og sorpskýli, mhl.03, við
lóðarmörk lóðar nr. 5, breyta innra skipulagi í eldri hluta mannvirkis, fjarlægja skrifstofur til þess að
koma fyrir eldhúsi og matsal, bæta við gluggum á norður og vesturhlið 1. hæðar, koma fyrir nýrri
flóttahurð, og stækka hurð að nýju eldhúsi, jafnframt er skráningartafla leiðrétt fyrir verslunar- og
skrifstofuhúsið mhl.01, á lóð nr. 1-3 við Grjótháls.
Mhl.03 - Stærð: 96.1 ferm., 297.9 rúmm.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa lóðar nr. 5 vegna hjólaskýlis dags. 28. nóvember 2023, bréf frá
hönnuði dags. 27. febrúar 2024 og yfirlit breytinga á aðalteikningum án stimpils byggingarfulltrúa
dags. 8. nóvember 2022.