Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. mars 2024 var lögð fram fyrirspurn
BL ehf.
, dags. 6. febrúar 2024, ásamt bréfi Arkís, dags. 10. janúar 2024, um breytingu á lóð nr. 2 við Sævarhöfða sem felst í að stækka lóð til austurs fyrir bílastæði og minnka lóð í norðaustur þannig að hægt sé með góðu móti að koma fyrir stoppistöð sem áætluð er þar, bæta við bílastæðum í suðausturhorni lóðar og gróðursetja tré við Bíldshöfða og niður að Sævarhöfða, samkvæmt tillögu
Arkís arkitekta ehf.
, dags 26. janúar 2024. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. maí 2024.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 16. maí 2024.