Undraland
Undraland
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1153
9. apríl, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að byggja tveggja hæða íbúarhúsnæði fyrir óhefðbundið búsetuform, með 16 íbúðarrýmum fyrir allt að því 25 manns á efri hæð og sameignilegum rýmum og viðtalsherbergjum á neðri hæð íbúðarhúss á lóð nr.1 við Undraland. Stærð: 956.3 ferm., 3.006.5 rúmm. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 18. mars 2024, óþinglýst mæliblað 1.880.0 dags 10. janúar 2024 og hæðarmæling lóðar dags. 9. nóvember 2020.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði
þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108854 → skrá.is
Hnitnúmer: 10122413