Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. mars 2024 var lögð fram fyrirspurn Martijn Veenman, dags. 30. janúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reits 1.190.2, vegna lóðarinnar nr. 1 við Bergþórugötu sem felst í stækkun hússins/setja garðskála á lóð, samkvæmt skissu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. apríl 2024. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. apríl 2024, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. apríl 2024, samþykkt.