Grafarholt austur - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Gvendargeisli 76
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 953
15. febrúar, 2024
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. febrúar 2024 var lögð fram fyrirspurn Antons Á. Kristinssonar, dags. 25. janúar 2024, um breytingu á deiliskipulagi Grafarholts austur vegna lóðarinnar nr. 76 við Gvendargeisla sem felst í að skjólgirðing norðan og austan megin við lóð, meðfram gangstíg, fái að standa óbreytt. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. febrúar 2024.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 15. febrúar 2024.
Svar

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 15. febrúar 2024.