Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 954
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2024 var lögð fram umsókn Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 26. janúar 2023, ásamt bréfi Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 26. janúar 2024, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Suður Mjóddar vegna lóðarinnar nr. 4 við Álfabakka. Í breytingunni sem lögð er til felst að núverandi byggingarreitur á baklóð við suðaustur horn lóðar verði stækkaður til að bæta aðkomu að vörumóttöku og auðvelda affermingu, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð, dags. 26. janúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

109 Reykjavík
Landnúmer: 231585 → skrá.is
Hnitnúmer: 10144416
Deiliskipulag
Suður-Mjódd
Samþykkt 22.01.2009 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag