Kópavogur - Dalvegur 32 - breyting á deiliskipulagi
Dalvegur 32
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 949
18. janúar, 2024
Annað
‹ 21
22
Fyrirspurn
Lögð fram umsagnarbeiðni Kópavogsbæjar, dags. 11. janúar 2024, þar sem óskað er eftir umsögn á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalvegar 32. Í breytingunni sem lögð er til felst m.a. að byggingarreitur Dalvegar 32B minnkar til austurs og byggingarreitur Dalvegar 32C stækkar og færist til á lóðinni. Auk þess hækkar byggingarreitur Dalvegar 32C úr tveimur hæðum ásamt kjallara í tvær til fjórar hæðir ásamt kjallara og sex hæðir ásamt kjallara austast á lóðinni. Heildarbyggingarmagn á lóð eykst ásamt því að nýtingarhlutfall ofanjarðar eykst og breytist fyrirkomulag og fjöldi bíla- og hjólastæða í samræmi við bíla- og hjólastæðaviðmið á samgöngumiðuðum svæðum í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040. Auk þess er gert ráð fyrir gatnatengingu milli Dalvegar 30 og 32 á suðvesturhluta lóðarinnar, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Arkís arkitekta ehf. , dags. 7. nóvember 2023. Einnig er lagt fram minnisblað Ráðgjafar og hönnunar um hljóðvist, dags. 3. október 2022, og umferðargreining VSÓ ráðgjafar, dags. í október 2022 og tvö minnisblöð VSÓ ráðgjafar, annars vegar um umferð innan lóðar og ytri áhrifum, dags. 3. nóvember 2022 og hins vegar um samgöngugreiningu, dags. 29. nóvember 2023.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.