Breiðholt III, Fell -  breyting á deiliskipulagi - Völvufell
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 957
14. mars, 2024
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Breiðholts III, Fells vegna Völvufells (Þróunarreitur nr. 84 AR2040). Í breytingunni sem lögð er til felst heildarendurskoðun á svæðinu, til að koma á móts við breyttar áherslur. Almennum íbúðum í raðhúsum og fjölbýlishúsi er fjölgað, námsmannaíbúðir fjarlægðar,  leikskólalóð stækkuð, lóðarmörkum breytt og skipulagsmörkum þróunarsvæðisins eru uppfærð til samræmis við Þróunarreit Hverfisskipulags, samkvæmt uppdr. Krads, dags. 14. mars 2024.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.