Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. desember 2023 var lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 13. desember 2023, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðs eftirlits og vöktunar í Elliðaárstíflu. Í framkvæmdinni felst lagning rörs út í Elliðaá, sem inniheldur rennslismæli, inn í mannvirki Veitna sem er undir Breiðholtsbrúnni. Einnig er lögð fram kynning Verkís á vöktun, mælingum og eftirliti Elliðavatnsstíflu, teikningahefti Verkís, dags. 21. nóvember 2022, um stjórnbúnað fyrir rennslismæla, minnisblað Verkís, dags. 31. mars 2023, um lokur og stjórnbúnað, verkteikningar Orkuveitu Reykjavíkur og Verkís, dags. 5. og 7. desember 2023 og yfirlitsmynd sem sýnir staðsetningu framkvæmda. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. janúar 2024.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 25. janúar 2024 . Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023.