Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til breyta erindi USK23020319 og byggja tvö steinsteypt fjölbýlishús til
viðbótar, með fimm stigahúsum og 67 íbúðum þannig að íbúðir verða samtals 139, á áður
gerðum bílakjallara með 88 stæðum sem verður 2. áfangi uppbyggingar á lóð nr. 1 við
Eirhöfða.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2023 og 18. apríl 2024,
greinargerð ASK vegna mengaðs jarðvegs dags. 5. febrúar 2024, heildar varmatapsrammi
dags. 13. febrúar 2024, minnisblað frá Eflu verkfræðistofu varðandi mengaðan jarðveg dags.
11. júní 2024 og greinargerð aðalhönnuðar dags. 13. febrúar 2024.
Stækkun: (8.126,4 ferm., 26.162,9 rúmm.)
Samtals á lóð eftir stækkun: 19.869,9 ferm., 58.957,5 rúmm.