Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2024 var lögð fram umsókn
DAP ehf.
, dags. 8. desember 2023, um breytingu á hverfisskipulagi Árbæjar, hverfi 7.1 Ártúnsholt vegna lóðarinnar nr. 9 við Straum. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka lóð til austurs, skilgreina nýja byggingarreiti á austurhluta lóðar þar sem heimilt verður að reisa opna þvottabása og spennistöð ásamt búnaði til hleðslu rafbíla og hækka nýtingarhlutfall, samkvæmt uppdr. DAP, dags. 15. febrúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.