Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2024 var lögð fram umsókn
DAP ehf.
, dags. 27. nóvember 2023, um breytingu á deiliskipulagi Bíldshöfða 2 og 4-6 vegna lóðarinnar nr. 2 við Bíldshöfða. Í breytingunni sem lögð er til felst að stækka lóð, stækka byggingarreit, auka nýtingarhlutfall og að frárein að vestanverðu verði lögð af, samkvæmt uppdr. DAP, dags. 15. febrúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Komi til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. gr. 7.5. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1276/2023.