Kjalarnes, Mógilsá og Kollafjörður - breyting á deiliskipulagi - Klettastígur í Esju
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 955
29. febrúar, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. febrúar 2024 var lögð fram umsókn Fjallafélagsins ehf., dags. 27. nóvember 2023, um breytingu á deiliskipulag Kjalarness, Mógilsár og Kollafjarðar. Í breytingunni sem lögð er til felst að setja upp klettastíg við Fálkaklett í Búahömrum Esju, samkvæmt uppdr. M11 arkitekta, dags. 20. febrúar 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 , sbr. 12. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.
Svar

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 7.5 , sbr. 12. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.