Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2023 var lögð fram umsókn Landsnets, dags. 21. nóvember 2023, ásamt minnisblaði, dags. 21. nóvember 2023, um framkvæmdaleyfi vegna borunar á rörum undir Vesturlandsveg til að klára lagningu á Korpulínu 1 yfir í nýtt tengivirki Landsnetys við Korpu. Einnig eru lagðar fram teikningar Mannvits, dags. 2. nóvember 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. desember 2023.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 14. desember 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 997/2023.