Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2023 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 16. nóvember 2023, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar
Stjörnueggja hf.
um starfsleyfi fyrir eggjabúi á reit C í Saltvík á Kjalarnesi. Óskað er eftir umsögn um hvort starfsemi
Stjörnueggja hf.
er í samræmi við heimila landnotkun í skipulagi/gildandi deiliskipulagi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. desember 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. desember 2023, samþykkt.