Sævarhöfði 6-10 - umsagnarbeiðni um tímabundið starfsleyfi
Sævarhöfði 6
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 942
23. nóvember, 2023
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. nóvember 2023 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, dags. 6. nóvember 2023, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar um tímabundið starfsleyfi fyrir móttöku og geymslu á úrgangi til endurvinnslu á vegum malbikunarstöðvarinnar Höfða hf. að Sævarhöfða 6-10. Óskað er eftir umsögn um hvort notkun lóðarinnar fyrir móttöku á úrgangi til endurvinnslu, til 1. janúar 2025, samræmist skipulagi. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. nóvember 2023.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 23. nóvember 2023.
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 23. nóvember 2023.