Fyrirspurn
Kringlan - breyting á deiliskipulagi - Listabraut 3 - USK23110065 Lögð fram umsókn Halls Kristmundssonar, dags. 6. nóvember 2023, um breytingu á deiliskipulagi Kringlunnar vegna lóðarinnar nr. 3 við Listabraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að setja upp stafræn skilti í stað hefðbundinna dúkaskilta, samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 14. september 2023. Vísað til meðferðar verkefnastjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 997/2023.