Hlíðarendi - breyting á deiliskipulagi - Hlíðarendi 14
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 956
7. mars, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. janúar 2024 var lögð fram umsókn Knattspyrnufélagsins Vals, dags. 31. október 2023, ásamt greinargerð Alark arkitekta, dags. 30. október 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðanna nr. 6 og 14 við Hlíðarenda. Í breytingunni sem lögð er til felst afmörkun tveggja lóða, annars vegar fyrir æfingasvæði og hins vegar fyrir gervigrasvöll á lóð Knattspyrnufélagsins Vals. Um að ræða vestasta hluta Hlíðarenda 14, nánar til tekið vestan við ný samþykktan gervigrasvöll félagsins, og vestasta hluta Hlíðarenda 6, Friðriksvöll. Hlíðarendi 14. skiptist í tvær lóðir og  Hlíðarendi 6 skiptist einnig í tvær lóðir, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta, dags. 1. mars 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1276/2023, áður en breytingin er auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Svar