Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagasviðs um breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits og Vesturbugtar, Gömlu hafnarinnar vegna reita 03 og 04. Lóðir eru aðgreindar á reitunum. Hámarks byggingamagn ofanjarðar fer úr 18.400 m2 í 18.300 m2. Leyfilegur fjöldi íbúða fer úr 170 íbúðir í 170 + 7 íbúðir fyrir búsetuúrræði og skulu 25% íbúða vera leiguíbúðir. Hæð húsa F4 hækkar úr 4 hæðum í 5 (leikskóli á þakhæð fellur niður). Raðhús R2 á reit 03 eru felld út og inngarður stækkar sem því nemur. Raðhús R2 á reit 04 breytast í fjölbýlishús. Sérafnotarými íbúða á jarðhæð verða eins og almennir skilmálar fyrir svalir, þ.e. 1,5m út fyrir byggingareit og engin takmörk eru fyrir dýpt sérafnotarýmis. Bílkjallarar aðgreindir frá hvor öðrum, minnkaðir og bilastæðum fækkað í samræmi við endurskoðað samgöngumat og skulu rúma bíla- og hjólastæði. Bílastæði á yfirborði eru á borgarlandi. Bílkjallarar ná ekki út fyrir byggingareiti. Jarðlag á almenningsrýmum ofan á bílakjallara skal vera minnst 0,6m. Öll almenn bílastæði á yfirborði og í kjallara skulu verða samnýtt og almenn bílastæði í bílakjöllurum skulu vera aðgengileg fyrir almenning með sérinngangi. Atvinnuhúsnæði á jarðhæð að Mýragötu, gerð F5 og F6 breytast í íbúðir gerð F5a og F6a. Atvinnuhúsnæði á jarðhæð suðurhliðar reits 4 breytist í íbúðarhúsnæði, þar af allt að 500 m2 ætlað fyrir fyrrgreindrar heimildar um búsetuúrræði. Viðbótarreitur fyrir djúpsorpgáma fyrir reit 07 er komið fyrir sunnan við reit 04. Sérlóð er fyrir alla djúpgáma, samkvæmt uppdráttum Alark arkitekta, dags. 16. nóvember 2033. Einnig er lagt fram samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í september 2023.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.
Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 997/2023.