Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 955
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir lóðirnar nr. 19 og 21-23 við Laufásveg. Í tillögunni sem lögð er til felst breyta notkun á húsnæðinu sem áður hýsti sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg 21-23 ásamt skrifstofum á baklóð Laufásvegar 19 í íbúðarhúsnæði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, samkvæmt uppdrætti Alta, dags. 22. nóvember 2023. Húsnæðið verði eingöngu nýtt til þessarar nota og óheimilt að leigja það út á almennum markaði. Tillagan var auglýst frá 11. janúar 2024 til og með 22. febrúar 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Guðrún Erla Geirsdóttir, dags. 21. febrúar 2024, Arnar Guðmundsson, dags. 21. febrúar 2024, ásamt viðauka við athugasemd, dags. 22. febrúar 2024, Karl Pétur Jónsson f.h. Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna, dags. 22. febrúar 2024, Sigrún Tryggvadóttir, dags. 22. febrúar 2024, Dóra Haraldsdóttir, dags. 22. febrúar 2024, Alda Björk Valdimarsdóttir, Filippía Ingibjörg Elísdóttir og Guðni Elísson, dags. 22. febrúar 2024, Guðlaug Gísladóttir f.h. Auðrún ehf. , dags. 22. febrúar 2024, Hafliði Þór Pétursson og Snærós Vaka Magnúsdóttir og Íbúaráð Miðborgar og Hlíða, dags. 22. febrúar 2024. Auk þess er lögð fram bókun fulltrúa íbúasamtaka í íbúaráði Miðborgar og Hlíða, dags. 23. febrúar 2024.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Síðasta markaðsverð
645.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 2065 m² · 13.05.2022
Kaupskrá 5 eignir
645.000.000 kr. 13.05.2022
Atvinnuhúsnæði · 2065 m² · bygg. 1964 · HMS
64.000.000 kr. 10.12.2021
Fjölbýli · 110 m² · 2 herb. · bygg. 1933 · HMS
44.900.000 kr. 29.09.2021
Fjölbýli · 79 m² · 1 herb. · bygg. 1933 · HMS
51.000.000 kr. 23.03.2021
Fjölbýli · 94 m² · 2 herb. · bygg. 1933 · HMS
38.900.000 kr. 09.01.2014
Fjölbýli · 91 m² · 2 herb. · bygg. 1933 · HMS