Fyrirspurn
Laugavegur 170 - USK23100047 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. október 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. október 2023 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga Heklureits, þriggja til sjö hæða fjölbýlishús með 105 íbúðum og atvinnurýmum á jarðhæð að Laugavegi, á tveggja hæða kjallara með 80 bílastæðum á lóð nr. 170 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.