Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. október 2023 var lögð fram umsókn
Landslags ehf.
, um breytingu á deiliskipulagi Miklubrautar vegna lóðarinnar nr. 100 við Miklubraut. Í breytingunni sem lögð er til felst að bætt við nýjum byggingarreit fyrir spennistöð og tæknirými á lóð ásamt viðbótarrými fyrir hleðslubúnað, samkvæmt uppdr. Landslags dags. 25. september 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 997/2023.
Svar
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 997/2023.