Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. október 2023 var lögð fram fyrirspurn
Kjalarness ehf.
, dags. 28. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Móa, Skrauthóla og Sjávarhóla vegna lóðarinnar nr. 1 á Sætúni sem felst í hækkun á hámarkshæð bygginga, aukningu á nýtingarhlutfalli auk B-rýmis í kjallara, en óskað er eftir geymslukjallara sem nær undir lóðir A og B, fjölgun á innkeyrslum um tvær, og koma fyrir allt að tveimur byggingum á reit B, samkvæmt uppdr. K.J.
ARK slf.
, dags. 27. september 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. október 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. október 2023, samþykkt.