Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. október 2023 var lögð fram fyrirspurn Daníels Arnar Steinarssonar, dags. 28. september 2023, ásamt bréfi ódags., um breytingu á notkun tvöfalds bílskúrs á lóð nr. 73 við Fannafold í aukaíbúð, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. nóvember 2023.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 2. nóvember 2023, eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt berist hún.