Breiðhöfði 9
Breiðhöfði 9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1159
21. maí, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 5-6 hæða fjölbýlishús með 50 íbúðum á bílakjallara með 30 stæðum á lóð nr. 9 við Breiðhöfða. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Myrru dags. 16. ágúst 2023, hæðarblað dags. 20. júlí 2022 og mæliblað dags. 4. júlí 2022. Einnig fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. apríl 2024 og svarbréf dags. 28. febrúar 2024. Stærð: 7.165.1 ferm., 23.738,6 rúmm.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið
eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr.
2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði
þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu
búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.