Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. október 2023 var lögð fram fyrirspurn Dap ehf., dags. 18. september 2023, ásamt greinargerð, dags. 18. september 2023, um gerð deiliskipulags fyrir lóðina nr. 40 við Stóragerði sem felst í að fjarlægja mannvirki sem fyrir er á lóðinni, ásamt eldsneytisútbúnaði sem er ofan og neðanjarðar og reisa þar tveggja til fimm hæða íbúðarhús innan núverandi lóðamarka á tveimur byggingarreitum, annars vegar byggingarreitur fyrir sérbýlishús/raðhús og hins vegar byggingarreitur fyrir fjölbýlishús, samkvæmt tillögu Dap, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. nóvember 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 9. nóvember 2023, samþykkt.