Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. september 2023 var lögð fram umsókn Grímu arkitekta ehf., dags. 12. september 2023, ásamt bréfi, dags. 12. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Kjalarness, Esjumela vegna lóðarinnar nr. 2 við Koparsléttu. Í breytingunni sem lögð er til felst færsla og fjölgun á innkeyrslum, stækkun á byggingarreit og að heimilt verði að vera með metanafgreiðslustöð á lóð, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta, dags. 11. september 2023. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt er að veita undanþágu frá skipulagsmeðferð með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborga, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.