Ármannsreitur - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Sóltún 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 933
21. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Ármannsreitur - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Sóltún 2 - USK23090061 Lögð fram fyrirspurn Karls Magnúsar Karlssonar, dags. 6. september 2023, ásamt bréfi VA arkitekta, dags. 4. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 2 við Sóltún sem felst í fjölgun íbúða um fjórar, stækkun á byggingarreit 1. hæðar í suðurátt fyrir garðskála og breytingu á fyrirkomulagi bílastæða. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.