Skúlagötusvæði - breyting á deiliskipulagi - Skúlagata
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 934
28. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn VSÓ ráðgjafar, dags. 4. september 2023, um breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis fyrir tímabundna skiptistöð Strætó. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitir fyrir þjónustu eru felldir út og afmarkað er svæði fyrir skiptistöð Strætó þar sem komið verður fyrir biðstöðvum ásamt strætóskýlum. Auk þess er afmarkaður byggingareitur fyrir aðstöðuhús starfsmanna Strætó, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar, dags. 28. september 2023.
Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs.