Breiðholt, hverfi 6.2 Seljahverfi - breyting á hverfisskipulagi - Öldusel 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 930
31. ágúst, 2023
Annað
Fyrirspurn
Breiðholt, hverfi 6.2 Seljahverfi - breyting á hverfisskipulagi - Öldusel 17 - Ævintýraborgir við Ölduselsskóla - USK23080222 Lögð fram umsókn Hornsteina arkitekta, dags. 28. ágúst 2023, um breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hverfi 6.2 Seljahverfi, vegna lóðarinnar nr. 17 við Öldusel, Ölduselsskóli. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreina byggingarreit á lóð fyrir tímabundnar færanlegar byggingareiningar, hentugar fyrir 10 deilda leikskólastarfsemi, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta, dags. 26. maí 2023. Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu á hverfisskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1051/2022.