Fyrirspurn
Reitur 1.133.1, Landhelgisgæslureitur - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Seljavegur 10 - USK23080221 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2023 var lögð fram fyrirspurn Freyju Rósar Óskarsdóttur, ásamt bréfi dags. 27. ágúst 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits, vegna lóðarinnar nr. 10 við Seljaveg sem felst í að heimilt verði að koma fyrir innkeyrslu og bílastæði á lóð, samkvæmt skissu á yfirlitsmynd. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Seljavegur 10