Fyrirspurn
Kvosin - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Suðurgata 3 - USK23080145 Lögð fram fyrirspurn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 20. ágúst 2023, ásamt greinargerð, dags. 15. ágúst 2023, um breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 3 við Suðurgötu sem felst í hækkun hússins að hluta þar sem komið er fyrir rishæð sem tengist núverandi íbúð ásamt því að koma fyrir garðhýsi úr gleri á hluta þaks yfir 1. hæð þar sem nú er þakgarður. Garðhýsið tengist íbúð um aðra hæð, en þar er einnig komið fyrir svölum til suðurs, samkvæmt tillögu DAP ehf., ódags. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.