Fyrirspurn
Heilsuverndarreitur - breyting á deiliskipulagi - Egilsgata 5 - USK23080131 Lögð fram umsókn Klasa ehf., dags. 18. ágúst 2023, ásamt bréfi, dags. 21. ágúst 2023, um breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðarinnar nr. 5 við Egilsgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að reisa þriggja til fimm hæða hús, með aðgengi að dvalarsvæði frá Egilsgötu og með heimild fyrir þakssvölum og kjallara, og allt að 48 íbúða byggingu á horni Snorrabrautar og Egilsgötu, samkvæmt deiliskipulags-, skýringaruppdr. Tendru arkitektúr, dags. 19. og 20. september 2023. Einnig er lögð fram hljóðvistarskýrsla VSÓ ráðgjafar, dags. í júlí 2023, hljóðstigsuppdráttur, VSÓ ráðgjafar, dags. 24. júlí 2023, samgöngumat VSÓ ráðgjafar, dags. í ágúst 2023 og húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur, skýrsla 226. Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs. Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1051/2022.