Fyrirspurn
Bæjarháls-Hraunbær - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Hraunbær 143 - USK23080119 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. ágúst 2023 var lögð fram fyrirspurn Grímu arkitekta, dags. 16. ágúst 2023, ásamt bréfi, dags. 16. ágúst 2023, um breytingu á deiliskipulagi Bæjarhálsar-Hraunbæjar vegna lóðarinnar nr. 143 við Hraunbæ sem felst í að heimilt verði að sérmerkja fjögur bílastæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. ágúst 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 31. ágúst 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Bæjarháls-Hraunbær - Hraunbær 143