Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að gera nýja eignaskiptayfirlýsingu þar sem um er að ræða breytta skráningu á
fjöleignarhúsi. Fyrir útgáfu byggingarleyfis þarf að berast staðfesting frá eignaskiptayfirlýsanda, á
tölvupóstfang eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is, um að vinna á nýrri eignaskiptayfirlýsingu er hafin.
Eignaskiptayfirlýsingu þarf að þinglýsa fyrir lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.