Fyrirspurn
Njálsgötureitur, reitur 1.190.2 - (fsp) breyting á deiliskipulagi - Njálsgata 42 - USK23070185 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2023 var lögð fram fyrirspurn Guðrúnar Stefánsdóttur, dags. 20. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits, reitur 1.190.2, vegna lóðarinnar nr. 42 við Njálsgötu sem felst í að stækka húsið til suðausturs upp að lóðarmörkum, samkvæmt skissu, dags. 29. júní 2023. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju. Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt ef hún berst.