Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. ágúst 2023 var lögð fram fyrirspurn Kjötmarkaðarins ehf., dags. 18. júlí 202, ásamt bréfi Arktika, dags. 7. júlí 2023, um stækkun hesthúsins nr. 4 við D-Tröð þannig að suðvesturgafl hússins nái að lóðamörkum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. ágúst 2023.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 24. ágúst 2023. Samræmist ekki deiliskipulagi.