Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Hjalta Brynjarssonar, dags. 14. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.3, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 61 við Njarðargötu. Í breytingunni sem lögð er til felst heimild til að lengja áðurheimila viðbyggingu, uppá 3 hæðir og ris, um 2 m til suðvesturs, í samræmi við gildandi mæliblað. Núverandi stigahús víkur, ásamt geymsluskúr á lóð, og nýtt stigahús með lyftu er fellt inn í kropp hússins sem telur að hámarki 8 íbúðir, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum Nordic, dags. 5. mars 2024, felur breytingin í sér aukningu á byggingarmagni um 95 m2 og nýtingarhlutfall lóðar hækkar úr 1,61 í 2,07. Einnig eru lagðar fram umsagnir Minjastofnunar Íslands, dags. 24. apríl 2023 og 16. ágúst 2023. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. október 2024 til og með 10. desember 2024. Athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. desember 2024. Lagt er til að tillagan verði samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Í ljósi þessa alvarlega máls í Álfabakka þar sem heimildir voru allt of rúmar, mál sem við flest erum í miklu uppnámi yfir, er það mat Flokks fólksins að það er oft sama hvað fólk gerir athugasemdir við, jafnvel sendir inn alvarlega kvörtun um að verið sé að skerða eignir þeirra, birtumagn, aðgengi, þrengja að bílastæðum o.s.frv. þá er bara bent á gildandi deiliskipulag og þar við látið sitja. Svoleiðis er einmitt í þessu máli, varðandi athugasemdir sem eiga við fyrirliggjandi erindi að Njarðargötu 61 þá er viðkvæðið að þetta sé í gildandi deiliskipulagi og fyrir þessu séu heimildir. Eitthvað hlýtur að vera hægt að gera í málum af þessu tagi s.s. bæta í skilmálana. Fulltrúi Flokks fólksins vill að hlustað verði á þá sem fyrir eru, það er óboðlegt að gera breytingar - viðbætur sem dregur úr gæðum eigna sem fyrir eru.