Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2023 var lögð fram fyrirspurn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 14. júlí 2023, ásamt bréfi, dags. 14. júlí 2023, um hvort breytingar á JL húsinu á lóð nr. 121 við Hringbraut sem fela í sér að innrétta 2. og 3. hæð sem gistiskála eða farfuglaheimili (hostel), rétt eins og 4. og 5. hæð eru í dag ásamt því að innrétta jarðhæð sem þjónustumiðstöð, kaffihús, aðstöðu fyrir börn og kennslustofur, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
, dags. 21. júlí 2023, séu í samræmi við gildandi deiliskipulag. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. september 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. september 2023, samþykkt.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. september 2023, samþykkt.