Fyrirspurn
Gufunes - breyting á deiliskipulagi - Gufunesvegur 10 - USK23070111 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2023 var lögð fram umsókn Sorpu bs, dags. 10. júlí 2023, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness vegna lóðarinnar nr. 10 við Gufunesveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að bætt er við byggingarreit suðaustan við núverandi byggingu til þess að bæta starfsmannaaðstöðu, auk þess er bætt við byggingarreit norðvestan við núverandi byggingu til þess að byggja yfir núverandi stigahús, samkvæmt uppdr. Nordic, dags. 6. júlí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju. Vísað til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. 8.2. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.