Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
32. Lindargata 58 - BN055333 Sótt er um leyfi til að breyta skráningu geymslu í vinnustofu og byggja
svalir og tröppur á bakhlið ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi í
rými 0002 í húsi á lóð nr. 58 við Lindargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. mars 2019 fylgir erindi, ásamt
umsögn skipulagsfulltrúa frá 29. mars 2019 og samþykki meðeigenda dags. 26. febrúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 8. apríl 2022 fylgir erindi, ásamt
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. apríl 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. apríl 2022.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni
verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.