Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 27. júní 2023 þar sem sótt er um leyfi til að byggja göngubrú með stiga- og lyftuturnum beggja vegna, úr forsmíðuðum stáleiningum yfir Sæbraut frá mótum Snekkju- og Barðavogar yfir á lóð nr. 46 við Dugguvog.
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Eikjuvogi 1, 2, 3, 4, 5, 7, og 11, Snekkjuvogi 19, 21 og 23, Barðavogi 38, 40, 42 og 44 og Dugguvogi 46 og 44.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.