Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1051
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar að nýju deiliskipulagi fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar, frá vegamótum við Bæjarháls að sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Megintilgangur tvöföldunar Suðurlandsvegar er að auka umferðaröryggi allra fararmáta og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg með því að aðskilja akstursstefnur. Tvöföldun vegarins á þessum vegkafla er hluti af stærra verkefni sem er breikkun Suðurlandsvegar frá Hádegismóum í Reykjavík að Hveragerði. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 2+2 stofnvegi frá Bæjarhálsi að sveitafélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Vegtengingum er fækkað frá því sem nú er og gert ráð fyrir heildstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Útfærsla í deiliskipulagi miðar við gatnamót í plani, í samræmi við fyrsta og annan áfanga framkvæmdarinnar. Gögn deiliskipulagsins eru greinargerð Eflu, dags. dags. 23. janúar 2025, br. 12. janúar 2026, deiliskipulagsuppdráttur Eflu (1:2000) og þrír skýringaruppdrættir Eflu (1:800), dags. 15. janúar 2025, br. 12. janúar 2026. Tillagan var auglýst frá 3. júlí 2025 til og með 15. ágúst 2025. Athugasemdir og umsagnir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2025 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Minjastofnunar, dags. 27. janúar 2026.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.