Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júní 2023 var lögð fram fyrirspurn FA40 ehf., dags. 8. júní 2023, ásamt greinargerð M11-Arkitekta dags. 8. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis, svæði 4 vegna lóðarinnar nr. 8 við Gjúkabryggju sem felst í heildarfjölda bílastæða á lóð og að falla frá byggingu fyrirhugaðs bílakjallara. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. júlí 2023.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 21. júlí 2023.