Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2023 var lögð fram umsókn Meistaralagna ehf., dags. 8. júní 2023, um framkvæmdaleyfi vegna breytingar á lögn við lóð nr. 50 við Skildinganes. Einnig eru lagðar fram yfirlitsmyndir og loftmynd. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2023.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2023. Vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.