Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. júní 2023 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 6. júní 2023, um framkvæmdaleyfi vegna lagningu nýs vegar frá tengivegi Björgunar við Víðinesveg meðfram jarðgerðarstöð Sorpu og styrkingu/viðhalds núverandi Víðinesvegar frá Vesturlandi að jarðgerðarstöð Sorpu. Einnig er lagt fram teikningasett, dags. í maí 2023, lýsing á framkvæmd, ódags., framkvæmdaáætlun, ódags. og yfirlitsmyndir frá Hnit verkfræðistofu, dags. 16. maí 2023. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi, vísað til skrifstofu stjórnsýslu og gæða til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.