Fyrirspurn
Skólavörðuholt - breyting á deiliskipulagi - Barónsstígur 34 - Vörðuskóli - Ævintýraborgir - USK23060009 Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 34 við Barsónsstíg. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðar ásamt stækkun á byggingarreit, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Nordic, dags. 22. júní 2023. Tillagan var auglýst frá 26. júlí 2023 til og með 7. september 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur, dags. 6. september 2023 og íbúaráð Miðborgar og Hlíða, dags. 7. september 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. september 2023 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagfulltrúa, dags. 21. september 2023. Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagfulltrúa, dags. 21. september 2023, og með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Barónsstígur 34